Jæja þá ætla ég að segja ykkur söguna af því...
Eins og þið kæru vinir og vandamenn vitið þá vorum við að leigja íbúð við nattergalevej, íbúðin er 53 fm og vorum við að borga 6000 dkr. á mánuði. Fyrir okkur íslendinga hljómar það ekki svo mikið, en það gerir það hér í DK.
Við sóttum um húsaleigubætur líkt og við eigum rétt á, en eigendurnir sögðu við okkur að við ættum ekki rétt á húsaleigubótum því þetta væri framleiga og þetta væri svo stuttur tími svo þau neituðu að skrifa undir.
Þegar liðið var á leigutímann tók Ebbi sig til og fór með samninginn okkar á hina og þessa bæjarskrifstofuna til að ath hvort við ættum einhvern rétt.
Uppúr því kom að við vorum að borga alltof háa húsaleigu og að þetta var ekki framleiga, heldur var eina ástæða þess að þau neituðu að skrifa undir sú að þá hefðu þau þurft að gefa leiguna upp til skattsins.
Við sendum þeim mail (nokkrum sinnum) þar sem við báðum þau vinsamlegast um að sýna okkur einhverja pappíra sem myndi styðja þeirra rök. En aldrei svöruðu þau því.
Þau sendu aðeins til baka, að við ættum að vera flutt út 31 jan. og íbúðin hrein og bla bla bla og að þau gætu hitt okkur kl 7.30 eða 8.30 föstudagsmorguninn 1. feb til að afhenda lykla og fara yfir hitamæla.
Við sendum til baka að við gætum ekki hitt þau fyrr en 9.30 þann morgunn vegna þess að það væri hátíð í skólanum hjá Lovísu. Þau gátu það ekki og sögðu þau okkur bara að skilja lyklana eftir í íbúðinni og svo myndu þau bara hafa samband með maili.
Þar sem við eigum inni hjá þeim 12000 dkr, (c.a 150.000kr íslenskar) sem tryggingarfé þá vorum við ekki alveg til í að afhenda lyklana.
Ebbi fer því kl 7.30 á föstudagsmorgni upp í íbúð til að hitta pakkið og hvað haldið þið!!!!
Þau voru mætt með iðnaðarlampa (!) til að fara yfir allt!! Ég var 3 daga að þrífa F******* íbúðina en samt fundu þau eitt og annað að!! Það var sprunga í eldföstu móti ( eldgömlu eldföstu móti) Það sást á svefnherbergisveggnum að rúm hafði staðið þar upp við!!
og fleira fáránlegt, en til að toppa þetta þá tók kjellingar B**** upp klósettstuna og sagði við Ebba:
" sérðu þetta?" Ebbi: uuhhh hvað? " Þessa setu keypti ég nýja þegar þið flytjið inn!!" Ebbi: uhh já, hvað er að? (setan var alveg hrein og sást ekki á henni)
Kjellan bendir undir setuna og Ebbi kíkir nær, þá sér hann að gljáinn hafði minnkað. Hún var semsagt mattari eftir að hafa verið notuð í 6. mánuði.
Þeim fannst íbúðin ekki nógu hrein og voru óánægð með þetta. (Ég var 3 klst. á hnjánum að þrífa aðeins gólfin með náttúru sápu og svampi því þetta eru einhver náttúruparket og mátti ekkert annað)
Ebbi brjálaðist, sagði þeim til synda sinna og lét þau vita að við ætlum að tilkynna þau til skattsins og húsaleigunefndar!!
Hann fór svo skjálfandi af bræði og ákváðum við þá bara að það þíddi ekkert að reyna að tala við þetta fólk því þau eru einfaldlega GEÐVEIK!!
Við erum nú búin að bíða spent eftir maili frá þeim þar sem þau ætluðu að reikna út hvað það myndi kosta þau að þrífa og mála íbúðina og kaupa nýtt eldfast mót.
( Æ gleymi að taka það fram að allan tíman voru þau alltaf að tala um að allt þyrfti að vera hreint og fínt fyrir næsta "leigjanda" sem er sonur þeirra og var að flytja inn þegar Ebbi og þau voru að fara yfir íbúðina!! hversu klikkað.. )
En jæja við fengum mail frá þeim í gær og ættla þau að draga 7.000 dkr af okkar 12.000dkr þannig að við fáum 5.000dkr til baka.
Næsta skref hjá okkur verður að láta danska ríkið taka þau í bakaríið!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Ókey ef þú hefur þrifið íbúðina þá er nokkuð ljóst að hún var fokking hrein!
heheh ég gerði allavega mitt besta og betur en það... ég lét hendur standa fram úr ermum og ekkert þras!!
Sendið skattmann á þau! Óþolandi pakk!
ég veit að ef gunnella var að þrífa þá var sko hreinna en hjá guði (býst við að það sé frekar hreint hjá honum. Er samt ekki með neina sönnun fyrir því). Allavega er hún alltaf voða dugleg að þrífa í öllum partýum :)
Úff, skítapakk þetta fólk. Gangi ykkur vel í baráttunni og vona að flutningarnir hafi gengið vel fyrir utan þetta vesen :-)
:)
Skítapakk rétt orðað já eða skítuga pakk, skamm að þið skuluð eyða upp klósettsetunni á 6 mánuðum, nei ég er að jóka,
Elska ykkur og sakna ykkar.
Amma dreki
ömurlega orkuþjófapakk...það er eins gott að þið eruð laus við þessa íbúð.
koss, Lupparnir
Skrifa ummæli